SNEEZ-SKVIZ

Flettingar í dag: 0
Gestir í dag: 0
Flettingar í gær: 3
Gestir í gær: 2
Samtals flettingar: 31151
Samtals gestir: 11340
Tölur uppfærðar: 16.5.2012 14:15:40

Færslur: 2007 Apríl

14.04.2007 16:31

Þær hefðu átt að tjá sig meira um innbyrðis viðureignina!! ha stelpur!

hahaha... þær sem að monntuðu sig svo af því að era yfir okkur innbyrðis. En halló við erum bara búnar að tapa 4 leikjum en þær 6 þannig að hvernig sem fer hjá okkur þá erum við í 3.sæti. KR stelpur töpuðu fyrir Skallagrím í gær, veit ekki hvernig, þær hafa verið sterkasta liðið sem ið höfum mætt í vetur, við höfum unnið einn leik á móti þeim og tapað tveimur. Þær eru gríðalega sterkar. En núna er það allt undir okkar leik komið hvort að þær fari upp eða ekki. Ef að við vinnum Fjölni þá fara KR upp en ef að við töpum þá fara Fjölnir upp. Já þetta er gríðaleg spenna 

3.sætið er mjög góður árángur hjá okkar liði og við getum verið virkilega ánægðar með það. Næsti vetur er spennandi og gaman að sjá hverjar verða með þá.

það var ekki meira í bili.

08.04.2007 19:35

enginn titill á þessu!

Það fór ekki of vel í síðasta leik Strákanna í Snæfell en það er ekkert til að skammast sín fyrir að detta út á móti sterku liði Kr-inga. En það er samt leiðinlegt, það verður ekki þrætt fyrir það. En áhorfendur geta ekki kvartað yfir leiknum sjálfum, þarna fékk fólk allt fyrir peninginn. Skemmtilegur leikur og það er vart hægt að biðja um betri úrslitaleik. Þvílík spenna og rosaleg stemming í húsinu. Ég hef aldrei farið aá jafn skemmtilegan leik í KR-heimilinu áður þrátt fyrir að úrslitin hafi lent vitlausu megin  Það hafa líklega aldrei verið jafn margir KRingar á leik og aldrei hafa þeir verið jafn duglegir að hvetja sitt lið með söngvum og klappi. Það var virkilega gaman en þó líka ótrúlega erfitt að vera áhorfandi á þessum leik. En allavega til hamingju með árangurinn í vetur Snæfell.

VIð erum þó ekki enn hættar. Okkar síðasti leikur verður 16.april á móti FJölnisstelpum. Í fyrri umferð vorum við eina liðið sem hafði sigur af því liði. VIð ætlum okkur að sjálfsögðu ekkert nema annan sigur og enda mótið með stæl. Leikurinn verður í Grafarvogi og á mánudegi þannig að við búumst nú ekkert séstaklega við því að fólk geri sér ferð á leik... hahah en það væri auðvitað ekki leiðinlegt þar sem þetta er síðasti leikurinn okkar á okkar fyrsta tímabili sem meistaraflokkur kvenna í 2.deild. Þetta er búið að vera frábær vetur og gaman að sjá hvernig áhorfendum fjölgar með hverjum leiknum hér heima og þökkum við að sjálfsögðu fyrir stuðninginn.

En jæja Sunna Guðný Högnadóttir!!!!  ég er enn að bíða eftir innslagi frá þér á þessa síður, það fer nú að verða síðasti séns fyrir þetta tímabil!! þú kannski kemur þá með svona annál fyrir árið.... ekki væri það nú leiðinlegt, með myndum og öllu tilheyrandi.


En ég kveð í bili
Erna Rut

02.04.2007 15:24

já þetta er ekki alveg dáið ennþá...

jæja rosalega langt síðan síðast og gaman að segja frá því að það er ekkert tap að baki. í gær tókst okkur að vinna ármann- þrótt með aðeins tveimur stigum. Hefðum viljað hafa þau feiri til að hafa betur innbyrðis en sigur er alltaf sigur.
Við höfum einnig spilað við Hrunamenn á Flúðum og unnum þann leik nokkuð örugglega með 30+.
Næsti leikur er á móti Fjölni í grafarvogi. Sá leikur er síðasti leikurinn okkar í vetur og við ætlum okkur að enda tímabilið með góðum sigri á Fjölni. Við vorum eina liðið sem að vann þær í fyrstu umferð en KR-ingum tókst að vinna þær í síðasta leik. Við komum bara stekar til leiks og ætlum okkur ekkert annað en sigur og svo vonandi gott liðspartý á eftir.... er það ekki stelpur??

jæja Sunna þar sem að kerfið er komið í lag þá býst ég fastlega við góðu pistli frá þér á næstu dögum. Gaman væri ef þú gætir jafnvel sagt frá síðustu leikjum. Ég er bara að stelast til að skrifa hérna inn (ætti að vera að læra)

En allavega þá er stórleikur í kvöld og vona ég svo innilega að ið þurfum ekki að fara aftur í DHL-höllina og ég held að Strákarnir ætli sér ekki þangað aftur. þannig að það verður fjör í fjárhúsinu í kvöld
 

Sjáumst þar ....

kv. Erna Rut
  • 1

meistaraflokkur kvenna

Nafn:

SneezSkviz

Afmælisdagur:

fyrsti leikurinn okkar var 14.Okt 2006

Heimilisfang:

íþróttahúsið í Stykkishólmi

Staðsetning:

Stykkishólmur

Tenglar